Skipakomur aldrei fleiri en 2024

Alls komu 612 skip og stærri bátar til hafnar í Hafnarfirði og Straumsvík á árinu 2024.  Það er að öllum líkindum mesta umferð stærri skipa um Hafnarfjarðarhöfn frá upphafi en að jafnaði hafa stærri skipakomur verið um 450 – 500 á ári síðustu áratugina.

Mest var fjölgunin í komum grindvískra togara og stærri fiskibáta sem rekja má til eldsbrotanna á Reykjanesi sem hófust í árlok 2023.  Einnig var nokkur fjölgun í komum erlendra togara og farmskipa, en fækkun í komum farþegaskipa.

Heildarafli sem kom á land í Hafnarfirði 2024 var um 50 þús. tonn eða um 12 þúsund tonnum meira en árið á undan.  Stór hluti aukningarinnar var frá togurum og bátum frá Grindavík, en Hafnarfjörður var 3.ja stærsta löndunarhöfn landsins á bolfiski á árinu 2024.

Vöruflutningar jukust einnig frá fyrra ári, en um 1 milljón og 30 þúsund tonn fóru í gegnum Hafnarfjörð og Straumsvík.  Nokkur aukning var vöruflutningum bæði í Straumsvík og Hafnarfjarðarhöfn.  Samdráttur var í innflutningi á malarefni og olíu, en umtalsverð aukning í saltinnflutningi og útflutningi á brotajárni.    

Sjá nánar yfirlit um skipakomur og vörumagn árið 2024.